
Hvönn veitingastaður býður tilraunakennda matargerð þar sem áhersla er lögð á staðbundið íslenskt hráefni. Við fáum
ferskt kjöt, fisk og grænmeti úr nærliggjandi sveitum
og breytum matseðli eftir árstíðum og aðgengi að spennandi hráefnum.
Á daginn bjóðum við bistrómatseðil með íslenskum réttum, en á kvöldin breytist matseðillinn reglulega eftir árstíðum og framboði hráefnis.
Matreiðslumeistarinn Bjarki Sól
nýtir áralanga reynslu sína og tengslanet til að tryggja gæði og ferskleika í hverri máltíð.
„Íslenskt
hráefni einstök
matargerð.“
Hótel Skálholt
Hótel Skálholt býður upp á 18 tveggja manna herbergi, öll búin tveimur einstaklingsrúmum og sérbaðherbergi. Tveir heitir pottar á verönd með fallegu útsýni.
Klettabúð og Árnesingabúð eru sumarhús með 2 svefnherbergjum og frábæru útsýni yfir Skálholt og fjöllin í kring.
Sumarhúsin rúma allt að 4 fullorðna í 2 svefnherbergjum.
Skálholtsbúðir er fullkominn staður fyrir allt að 21 manns. Frábært fyrir margs konar hópa, fjölskyldur, kóra, vinnustaði og fleira. Húsið er með 11 svefnherbergjum, 6 baðherbergjum, fullbúið eldhús, gasrill, stofu, borðstofu, veislu og fundarsal.
Organistahúsið
Organistahúsið er notalegt 3ja herbergja hús sem rúmar allt að 6 gesti. Í hverju svefnherbergi eru tvö einstaklingsrúm sem má raða saman sem tvíbreið eða nota sem tvö stök rúm.
Gisting
Fjölbreytt gistiaðstaða allt frá hlýlegum tveggja manna hótelherbergjum, 4-6 manna sumarhúsum yfir í stærri gistirými sem henta bæði einstaklingum og yfir í stærri hópa.
Hvönn veitingahús
Staðbundin hráefni og nútímaleg nálgun leitt af meistaranum Bjarka Sól, sem nýtir áralanga reynslu og sterk tengsl við framleiðendur á svæðinu.
Viðburðir
Hótel Skálholt býður upp á fjölbreytta viðburði allt árið um kring þar sem menning, tónlist og samfélag mætast í sögulegu og náttúrulegu umhverfi.
Fundir og ráðstefnur
Úrval fjölbreytta fundar og ráðstefnuaðstöðu, hvort sem óskað er eftir kyrrð og samveru eða vel búinni fundaraðstöðu innan hótelsins.
Gisting
Gisting fyrir einstaklinga, pör og hópa!
Hótel Skálholt býður upp á hlýlega og fjölbreytta gistingu í kyrrlátu umhverfi. Hvort sem um er að ræða einstaklinga, pör eða hópa allt að 75 manns.
Hvað segja viðskiptavinir okkar.

Um okkur
Bjarki Þór Ingigerðar Sólmundsson og Gunnhildur Helga Gunnarsdóttir tóku við Hótel Skálholt og Hvönn veitingastað árið 2021 og hafa byggt upp glæsilegt hótel og veitingastað í Skálholti.
Áhersla er lögð á einstaka matarupplifun þar sem hráefni úr næsta nágrenni gegna lykilhlutverki. Ásamt notalegri gistingu á einum af fallegasta stað landsins. Bjarki hefur getið sér gott orð fyrir hönnun veislumáltíða, og saman leggja þau ríka áherslu á hlýja og persónulega þjónustu á þessum sögufræga stað.
Skálholt býður upp á fjölbreytta þjónustu allt árið um kring fjölbreytta gistingu, máltíðir, tónleika, veislur, ráðstefnur, námskeið, fundi og margvíslega viðburði.































